
Ófeigsfjörður
Þar sem vegurinn endar
Spennandi ferð í Ófeigsfjörð á Ströndum
Dagsetningar: 2025
21. - 25. júlí Skvísuferð - Uppselt
16. - 20. ágúst - Ný ferð
Millu og Krillu ferðir bjóða þér og vinum þínum í 5 daga útivistar og upplifunarferð sem næra mun bæði líkama og sál.
Ófeigsfjörður á Ströndum er nyrsti fjörðurinn á Ströndum sem hægt er að aka í. Fegurðin á þessum slóðum, þar sem vegurinn endar, er stórkostleg og náttúran einstök, hvort sem er í þoku eða glampandi sólskini. Þar ber helst að nefna ógrynni ægifagra fossa. Fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir í Hvalá ef af verður hægist á rennsli þeirra til muna. Þessi ferð er sniðin að hressum og kátum konum á öllum aldri í sæmilegu formi. Við munum trítla á einhverja tinda (án erfiðleika), synda í sjónum og slaka á ströndinni en fyrst og fremst skemmta okkur saman.
Verð: 143.000 Hámark 16-18 manns
Innifalið: leiðsögn, fullt fæði frá kvöldmat á degi 1 og gisting í 4 nætur.
Dagskrá:
Dagur 1: Ekið af stað úr Reykjavík kl. 08:00 á einkabílum sem leið liggur í Norðurfjörð á Ströndum. Á leiðinni er vert að stoppa á ýmsum skemmtilegum stöðum t.d Kaldbaksvík, Djúpuvík. Við hittumst við Reykjaneshyrnu kl. 15:30 og göngum saman á fjallið 316 m (1 klst.) en þaðan er ægifagurt útsýni yfir Strandirnar. Í lok dags munum við svo dýfa okkur í hina mögnuðu Krossneslaug. Gist í Norðurfirði þar sem bílarnir verða skildir eftir.
Dagur 2: Dagurinn hefst með göngu yfir á Eyri við Ingólfsfjörð þar sem við fáum okkur hádegisslarl og áfram er svo haldið yfir í Ófeigsfjörð eftir gamalli leið um Brekku. (ca 5-6 klst. gangur). Í Ingólfsfirði skoðum við m.s. gamlar minjar frá síldarárunum. Hægt er að létta sér daginn með að fara í trússbílnum part af leiðinni.
Dagur 3-4: Við munum gista 3 nætur á þessum kyngimagnaða stað í 2ja og 3ja manna herbergjum í gömlu, uppgerðu húsi. Boðið verður upp á styttri og lengri göngur upp að fossum Rjúkanda, Drynjanda og Hvalárfoss sem stendur til að virkja. Einnig ætlum við í sjósund, kvöldvöku og fleira skemmtilegt. Það mun allavega engri leiðast, það er alveg klárt mál.
Dagur 5: Eftir frágang er gengið áleiðis í Ingólfsfjörð meðfram strandlengjunni með viðkomu á Seljanesi. Við fáum skutl í bílana og síðan er haldið heim á leið með viðkomu á ýmsum skemmtilegum stöðum,t.d fáum okkur kaffi í Djúpuvík. Áætluð heimkoma um kl. 19:00.