top of page
IMG_8411.jpg

Barðsnes og Gerpissvæðið
Hin leynda perla Austfjarða
Útivistar og upplifunarferð

Dagsetningar
9. júlí -13. Júlí 2024 Uppseld Sérferð

Þessi ferð er fyrir þá sem vilja nýja upplifun, ævintýri og smá bras. Við heimsækjum austasta tanga landsins, Barðsnes eða Gerpissvæðið eins og þetta svæði milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar er oftast kallað. Þetta stórbrotna svæði sem var friðlýst árið 2021, býr yfir ríku fugla og plöntulífi, stórbrotnu landslagi, minjum og merkri sögu. Þarna eru m.a. litrík líparíthraun, þykkt gjóskulag með plöntusteingerfingum, sjaldgæfar plöntutegundir, stórbrotnar klettamyndanir og fallegar hvítar strendur. Síðast en ekki síst erum við komnar burt frá skarkala daglegs lífs til þess að næra líkama og sál, taka vel á því, baða okkur í sjónum, njóta félagsskaparins, kyrrðarinnar og slaka.


Dagur 1: Eskifjörður- Barðsnes
Ferðin hefst á Mjóeyri við Eskifjörð kl 9:30. Þær sem koma með morgunflugi til Egilsstaða verða sóttar á flugvöllinn. Við sameinumst í bíla og keyrum á Norðfjörð þar sem gangan hefst. Gengið verður í Viðfjörð um Hellisfjörð þar sem okkar bíður bátaskult út á Barðsnes. Við komum okkur fyrir á eyðibýlinu Barðsnesi þar sem við gistum næstu tvær nætur.
Ganga 17 km.


Dagur 2: Barðsnes
Í dag ætlum við að ganga Barðsneshringinn sem er mögnuð gönguleið um gömlu líparíteldstöðina með stórkostlegri litadýrð. Leiðin liggur út á Barðsneshornið (Font) þaðan sem við, í góðu skyggni, fáum útsýni yfir Dalatanga og Austfirðina. Á heimleiðinni skoðum við m.a. Rauðubjörg og förum í sjósund í fjörunni áður en haldið er heim á bæ.
Ganga 14 km


Dagur 3: Barðsnes - Viðfjörður
Við pökkum saman og kveðjum þennan dásamlega stað og göngum sem leið liggur inn Viðfjörðinn. Við getumnvalið um tvær leiðir; ganga meðfram ströndinni eftir gömlum slóða með viðkomu á dásamlegri sandströnd. Ef vel viðrar getum við farið upp á eggjarnar fyrir ofan bæinn og notið útsýnisins og haldið inn með hlíðum fjarðarins. Við komum í fyrra fallinu í nýuppgert hús í Viðfirði með nútíma þægindum og gufubaði. Tökum teigjur og „happy“
Ganga 7-11 km


Dagur 4: Viðfjörður – Vöðlavík
Í dag gögnum við upp í Nónskarð til Sandvíkur og þaðan upp í Gerpisskarð, niður Gerpisdalinn til Vöðlavíkur. Úr Nónskaði er flott útsýni yfir á Gerpi, austasta höfða landsins og fleiri tignarlega tinda. Við fáum skutl frá Vöðlavík til Eskifjarðar með stuttu stoppi í ferðafélagsskálanum. Síðustu nóttina gistum í fallegum sumarhúsum með heitum pottum á ferðaþjónustubænum Mjóeyri við Eskifjörð og njótum gestrisni Sævars og Berglindar Steinu sem munu dekra við okkur í mat og drykk.
Ganga 15 km


Dagur 5: Heimferð
Eftir góðan morgurverð er boðið upp á skult á flugvöllinn á Egilsstöðum.


Verð: 170.000 kr 


Innifalið:
• Leiðsögn
• Gisting í 4 nætur
• Fullt fæði frá kvöldverði á degi 1 til morgunverðar á degi 5.
• Bátaskutl í Barðsnes og farangursskutl í Viðfjörð
• Skutl frá Vöðlavík í Mjóanes


Ekki innifalið:
• Ferðir frá Reykjavík til Eskifjarðar og til baka
• Hádegisnesti á fyrsta degi
• Áfengir drykkir

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page