top of page
IMG-20241202-WA0052.jpg


Fjörður - Hringferð um Gjögraskaga

Dagsetning: 28.-31. Júlí 2025

Verð: kr. 140.000,-

Hvalvatnsfjörður og Þorgeirsfjörður, austan Eyjafjarðar eru oft saman kallaðir Fjörður. Fjörður er afskekkt og einstaklega fallegt svæði sem fór í eyði árið 1944. Það er  fáfarið, sem gerir það að spennandi áfangastað fyrir þá sem leita að friðsælum og lítt numdum stöðum. Í Fjörðum má finna fjölbreytta flóru,  fánu og gamlar minjar frá fyrri tímum sem bera vitni um líf og starfsemi fólks á þessum afskekkta stað.

Fjörður er því fullkominn áfangastaður fyrir náttúruunnendur sem vilja upplifa hina hráu og óspilltu náttúru Íslands í sinni tærustu mynd.

Ferðin hefst og endar á Grenivík og er nokkuð krefjandi. Gist verður í svefnpokaplássi í skálum Ferðafélags Fjörðunga í Látrum á Látraströnd, Þönglabakka í Þorgeirsfirði og Gili í Hvalvatnsfirði. Þátttakendur þurfa að bera svefnpoka, farangur og mat til tveggja daga á bakinu en seinni tveir dagarnir eru trússaðir.  Boðið verður upp á léttar jógaæfingar í lok göngudags, morgunhugleiðslu, lækjarböð  og slökun við sérstök tækifæri. Allur matur er innifalinn (nema nesti á degi 1 og kvöldmatur á degi 4) og við hjálpumst að við matseldina.

Þetta er alvöru ferð fyrir alvöru fólk.

 

Leiðsögumenn verða heimafólkið Ásdís Skúladóttir og Jón Kristinn Sigurðsson, þau þekkja bæði svæðið og söguna upp ná 10.

Dagskrá:

 

Dagur 1.  Grenivík - Látur:  

Mæting á Grenivík kl 8:30. Þar sameinumst við í bíla og ökum um 7 km leið að Svínárnesi á Látraströnd þar sem gangan hefst. Þaðan er gengið eftir gömlum jeppaslóða norður ströndina að Grímsnesi, þar sem við stöldrum við stutta stund við húsarústirnar.  Síðan er gengin fjölbreytt leið að Látrum, skála Ferðafélags Fjörðunga þar sem gist verður fyrstu nóttina.

 

Vegalengd 14-15 km, gönguhækkun um 500 m.

 

Dagur 2. Látur - Keflavík - Þönglabakki:

Frá Látrum fylgjum við ströndinni norður eftir að Fossdal þar sem gengið er yfir Uxaskarð niður í Skarðsdal. Þaðan er gengið niður Keflavíkurdalinn um Fossabrekkur að gamla slysavarnarskýlinu, skála Ferðafélags Fjörðunga. Eftir gott stopp þar er haldið upp að austurbrún dalsins, á Messuklett, fram á Hnjáfjall, yfir Blæjukamb, um Botnsfjall að Botni í Þorgeirsfirði. Þaðan eftir Botnsfjöru að Þönglabakka, skála Ferðafélags Fjörðunga þar sem gist verður eina nótt.

Vegalengd 18 km. Gönguhækkun um 1000m.

Dagur 3:  Þönglabakki - Gil

Í dag göngum við yfir Þönglabakkaháls yfir í Hvalvatnsfjörð að Tindriðastöðum. Á Hálsinum er fallegt útsýni á Bjarnarfjall, yfir Hvalvatnsfjörðinn, Hvalvatnið og út ósinn. Síðan er gengið sem leið liggur inn Gilsafrétt, vestan ár að Gili, skála Ferðafélags Fjörðunga þar sem gist verður eina nótt. 

Vegalengd 12 km. Gönguhækkun um 300m.

 

Dagur 4: Gil - Grenivík

Gengið er frá Gili í Hvalvatnsfirði inn Trölldal upp á Þröskuld niður í Grenjárdal þar sem gengið er niður Grenivíkurfjall í átt að Grenivík.  Á Grenivík er upplagt fara í flottu sundlaugina og leyfa gönguþreytu liðinna daga að líða úr sér fyrir sameiginlegan kvöldverð á veitingastað þorpsins (ekki innifalinn).

Vegalengd 17 km. Gönguhækkun um 600m.

 

Innifalið:

  • Leiðsögn í 4 daga

  • Trúss seinni tvo dagana

  • Gisting í skálum í 3 nætur

  • Matur frá kvöldverði á degi 1 að hádegisverði á degi 4

 

Ekki innifalið:

  • Akstur til og frá Grenivík

  • Nesti fyrsta daginn og kvöldmatur á Grenivík síðasta daginn

  • Drykkir og orkunasl

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page