top of page
IMG_3963.jpg

Gönguskíðaferðalag í svissnesku Ölpunum

Uppselt (Sérhópur)

Gönguskíðaferð í Engadine-dalnum frá Maloja til Zernez. 

Engadine dalurinn í Svissnesku Ölpunum sem  þekktur er fyrir falleg stöðuvötn umkringd þéttum skógi hefur yfir að ráða yfir 280 km af flottum brautum á  einum af stórbrotnustu gönguskíðaleiðum heims.

Í þessari 7 daga / 6 nátta ferð, ferðumst við á gönguskíðum frá Maloja til Zernez og verður faranginn trússaður  milli hótela.  Á hvernum degi bíða okkar ný ógleymanleg ævintýri í nýjum brautum með stórkostlegu útsýni yfir goðsagnakennda fjallgarða.  Engdalnum liggur í yfir 1800 metra hæð og þar snjóar reglulega. Þurrt og kalst loftslag tryggir öruggt og gott skíðafæri frá desember til loka mars.  Skíðagönguleiðirnar sem við höfum valið eru fjölbreyttar og henta fyrir fólk á mismunandi skíðastigum með möguleika á að stytta sér leið eða hoppa í strætó hluta af leiðinni.  

 

Dagskrá vikunnar:

 

Dagur 1: Beint flug með Icelandair til Zurich og frá flugvelli er 2 ½ tíma keyrsla á fyrsta hótel. Mæting í  Maloja í Engadine-dalnum.

Ef við erum komin um miðjan dag getum við tekið prufurennsli í Bergell dalinn um Maloja til Islen og Cavloc vatnsins. Þetta er 5-6 km löng hringferð sem liggur í átt að Ítalíu sem er aðeins  í 30 mínútna fjarlægð.  

 

Dagur 2: Maloja til Val Fex (u.þ.b. 22 km).

Í Val Fex dalnum eru véknúin ökutæki bönnuð og aðeins gönguskíðafólk og hestvangar fara þar um en íbúar og starfsmenn hótelanna þriggja í dalnum fá undanþágu til að nota ökutæki sín  til að komast í og úr vinnu.  

Leiðin liggur í gegnum litla þorpið Isola, þar sem aðeins 6 fjölskyldur búa árið um kring og við munum njóta dásamlega fallegs útsýnis við rætur Piz Chapütschin fjallsins.  Í Val Fex má finna fjölda veitingastaða með útiverönd þar sem við stoppum í  hádegismat. Í lok dags komim við  til Maloja þar sem við getum heimsótt verkstæði hins fræga málara Giovanni Segantini. Teygjur og kvöldmatur á hótelinu.

 

Dagur 3: Maloja til Pontresina: (u.þ.b. 21 km)

Hið heimsfræga Engadine gönguskíðamaraþon hefur farið hér fram annan sunnudag í mars síðan 1969. Einungis árið 1991 þurfti að aflýsa mótinu vegna þess að það var of mikill snjór!

Leiðin hefst aðeins 500 metra frá hótelinu. Þetta er stórkostleg leið með gríðarstór fjöll allt um kring. Við skíðum  í gegnum Sils, Silvaplana og hið heimsfræga St-Moritz, áður en við komum til Pontresina.

 

Dagur 4: Pontresina til Val Roseg (u.þ.b. 16 km)

Við leggjum af stað frá hótelinu í miðbæ Pontresina og höldum 8 km upp dalinn Val Roseg þangað til við komum að veitingastað við rætur jökulsins. Þar býður okkar dýrindis hlaðborð af bestu eftirréttum Engadine dalsins.  Þeir sem vilja geta skíðað að jöklinum og til baka sem er vel þess virði.  Komið á hótel síðdegis þar sem gufubað og kvöldverður býður okkar.

 

Dagur 5: Pontresina til Zuoz (u.þ.b. 19 km)

Í dag skíðum við seinni hluta leiðar Engadine skíðamaraþonsins, eða um 19 km. Leiðin fylgir Enn ánni, sem síðan sameinast Dóná við Passau. Síðustu 3 km leiðarinnar í dag liggja upp og niður hæðir að þriðja hótelinu okkar í Zuoz. Í þessum bæ, við rætur Grisons þjóðgarðsins, sjáum við dæmigerð Engadin-hús, sem sum eru allt frá 1600. Við tökum  stutta gönguferð um þorpið til að dást að arkitektúrnum. Síðan er kvöldverður á hótelinu í Zuoz gönguskíðamiðstöðinni.

 

Dagur 6: Zuoz til Zernez (U.þ.b. 25 km)

Síðasti skíðadagurinn dagurinn okkar er mögulega sá allra fallegasti. Við skíðum samtals 25 km í gegnum dal sem er almennt þekktur sem Wild Valley eða White Valley frá Zuoz til Zernez.  Leiðin liggur meðfram járnbrautarteinum frægrar lestarlínu sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Dagurinn endar með þremur stórbrotnum salíbunum að hinum innganginum að Zernez þjóðgarðinum þaðan sem við tökum lest til baka á hótelið. Kvöldverður á hótelinu þínu eða í Zuoz gönguskíðamiðstöðinni.

 

Dagur 7. Brottfarardagur.

Morgunverður á hótelinu með þeim sem eru á förum, en hægt er að dvelja lengur.  

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page