Skilmálar
Afbókanir
-
Allar afbókanir skulu vera sendar á netfang okkar eða tilkynntar hér á heimasíðu okkar undir Hafa Samband.
-
Greiða skal staðfestingargjald sem jafngildir 20% af kostnaði ferðarinnar og fæst það ekki endurgreitt.
-
Ferðir innanlands
-
Afbókanir sem berast 21 til 14 dögum fyrir brottför fást aðeins endurgreiddar að hálfvirði (50%).
-
Afbókanir sem berast 14 dögum fyrir brottför eða fyrr fást ekki endurgreiddar. Aðrar afbókanir eru endurgreiddar að fullu, að undanskildu staðfestingargjaldi.
-
-
Ferðir utanlands
-
Afbókanir sem berast 60 til 30 dögum fyrir brottför fást aðeins endurgreiddar að hálfvirði (50%).
-
Afbókanir sem berast 29 dögum eða fyrr fást ekki endurgreiddar.
-
Meðferð persónuupplýsinga
-
Við kaup á vöru: Við söfnum upplýsingum þegar þú skráir þig í ferð. Eftir atvikum gætir þú verið beðinn um nafn, tölvupóstfang, heimilisfang, kennitölu o.fl. þegar ferð er bókuð. Persónugreinanlegar upplýsingar eru ekki geymdar lengur en nauðsyn ber til nema ef það er til að uppfylla lagaleg eða bókhaldsleg skilyrði.
-
Við deilum engum persónugreinanlegum upplýsingum með utanaðkomandi aðilum.
Annað
-
Milla og Krilla ehf. áskilja sér rétt til þess að breyta dagskrá ferða eða aflýsa þeim með öllu vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna til þess að tryggja öryggi farþega og leiðsögumanna.
Síðast uppfært 17. ágúst 2023.