top of page
2012 311_edited.jpg

Lónsöræfi
Fjögurra daga fjallaævintýri

Dagsetningar:

3. - 6. ágúst 2027

​

Fjöllin, víðáttan og kyrrðin – upplifðu eitt stórbrotnasta fjallasvæði Íslands.

Lónsöræfi eru sannkölluð náttúruperla á Austurlandi. Þar mætast litskrúðug líparítfjöll, djúpir dalir, jökul ár og hrikalegir fjallshryggir í landslagi sem á sér fáa líka. Svæðið er afskekkt og einstakt og býður upp á ógleymanlegar gönguleiðir fyrir fólk sem vill upplifa íslenska náttúru í sinni tærustu mynd.

Í þessari fjögurra daga ferð göngum við um stórbrotið fjalllendi Lónsöræfa, njótum útsýnisins, dveljum í fjallaskála og upplifum kyrrðina fjarri ys og þys hversdagsins.

Við höfum Múlaskála sem bækistöð og förum þaðan í spennandi dagsgöngur um Víðibrekkusker, Leiðartungur og Tröllakróka. Þetta er ferð fyrir göngufólk sem hefur gaman af fjölbreyttu fjallalandslagi, löngum göngudögum og góðum félagsskap.


Verð: 168.000 kr
 

Innifalið í verði:

  • Gisting í þrjár nætur í skála.

  • Allur matur meðan á dvöl stendur í Lónsöræfum.

  • Fararstjórn.

  • Skutl frá Höfn inn að Illakambi.

  • Akstur frá göngulokum til Hafnar.

Ekki innifalið:

  • Ferðir til og frá Höfn í Hornafirði.

  • Matur á Höfn.

  • Kaldir drykkir og nasl í bakpokann.


Dagskrá:

​

Þriðjudagur 3. ágúst – Reykjavík – Höfn – Illakambur – Múlaskáli

Við leggjum af stað frá Reykjavík kl. 07:00 á einkabílum og keyrum austur á Höfn í Hornafirði.

Kl. 13:00 hittist hópurinn á veitingastað á Höfn (staðsetning auglýst síðar). Þar gefst okkur tækifæri til að fá okkur hressingu og kynnast áður en ævintýrið hefst.

Kl. 14:00 hittum við bílstjórann okkar og leggjum af stað með rútu inn í Lónsöræfi að Illakambi.

Frá Illakambi þurfum við að bera við allan farangur inn í Múlaskála. Sú ganga er um 2,2 km og tekur um eina klukkustund.

Þegar í skálann er komið komum við okkur fyrir, tökum léttan gönguhring um nágrennið og njótum þess að vera komin inn í þessa einstöku náttúruperlu. Kvöldmatur og notaleg kvöldstund í skálanum.

 

Miðvikudagur 4. ágúst – Víðibrekkusker

Eftir góðan morgunmat og nestisgerð leggjum við af stað í dagsgöngu um kl. 10:00.

Dagsleiðin liggur um Víðibrekkusker þar sem við fáum að njóta stórbrotins útsýnis yfir á Jökulgilstinda í austi,  á Snæfell til norðurs og niður eftir  Jökulgiljunum alveg út í Lón. Þarna er litadýrð giljana engu lík.

Við göngum hringleið og gefum okkur góðan tíma til að njóta umhverfisins, taka myndir og stoppa á fallegum útsýnisstöðum.

Eftir góðan göngudag höldum við aftur í Múlaskála þar sem kvöldmatur og notaleg kvöldstund bíða okkar.

Göngutími: 5–6 klst. · Hækkun: um 700 m

 

Fimmtudagur 5. ágúst – Tröllakrókar um Leiðartungur

Eftir morgunmat og nestisgerð höldum af stað aftur.

Að þessu sinni liggur leiðin að Tröllakrókum um Leiðartungur. Þar bíður okkar fjölbreytt og fallegt fjallalandslag með tilkomumiklum fjallamyndunum, djúpum giljum og stórbrotnu útsýni.

Þetta verður skemmtileg en dálítið brött ganga þar sem við fáum að upplifa enn fleiri af leyndardómum Lónsöræfa.

Tröllakrókar eru að stórum hluta tilkomnir vegna gosa undir jökli á ísöld, sem mynduðu móberg. Skriðjöklar og vatnsföll hafa síðan sorfið landslagið og skilið eftir einangraða kletta, pílára og turna sem minna á tröllslegar verur.Ef verður og orka leifir höfum við möruleika á að halda áfram eftir brúnum Tröllakróka eða kíkja yfir í Víðidalinn og rifja upp sögu dalsins.

Að göngu lokinni snúum við aftur í Múlaskála, þar sem við eigum okkar síðasta kvöld saman í þessari einstöku fjallaferð.

Vegalengd: 10–14 km · Hækkun og lækkun: um  800 m

​

Föstudagur 6. ágúst – Múlaskáli – Kambar – Tæpugötuhjalli – Höfn

Eftir morgunmat og pökkun höldum við af stað í síðasta göngudag ferðarinnar. Við göngum upp að Illakambi og þaðan áfram um Kamba til suðurs, niður í Lón.

Þessi leið er sannkölluð náttúruupplifun. Við fylgjum gömlu gönguleiðinni um hrikalegt landslag Jökulsárgljúfra þar sem djúp gljúfur, litskrúðugar fjallshlíðar og tignarlegir fjallstindar skapa stórbrotna umgjörð.

Á leiðinni njótum við útsýnis yfir Jökulsá í Lóni, Hnappadalstind og Jökulgilstinda áður en við höldum niður Kamba og ljúkum ferðinni í Smiðjunesi.

Þar bíða bílar okkar og við höldum til Hafnar eftir fjögurra daga ævintýri í einu fegursta fjalllendi Íslands. Áætlaður tími á Höfn er kl 18.00

Vegalengd:15-16 km · Hækkun: um 700 m · Lækkun: um 800m

Þessi dagleið er með þeim flottustu á landinu en jafnframt krefjandi svo það er gott að vera búin að æfa sig áður en að ferð kemur.

​

Gisting og aðstaða í Múlaskála

Við dveljum í þrjár nætur í Múlaskála, þar sem við höfum góða aðstöðu til að hvílast og njóta samverunnar eftir göngudagana.

Í skálanum er hægt að fá:

  • Leigu á svefnpoka: 500 kr.

  • Sturtu: 500 kr.

  • Hleðslu á síma: 500 kr.
     

Gott að hafa í huga

Lónsöræfi eru afskekkt og veður getur breyst hratt. Mikilvægt er að vera með góðan göngubúnað, viðeigandi fatnað og bakpoka sem rúmar það sem þarf fyrir dagsgöngurnar.

Gönguleiðir og dagskrá geta tekið breytingum eftir veðri og aðstæðum hverju sinni.

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page