
Selvogur og Herdísarvík
3ja daga útivistar- og upplifunarferð
Dagsetning: 14.-16. maí 2024 Aflýst
Ný og spennandi 3ja daga útivistar- og upplifunarferð á sunnanverðu Reykjanesi.
Þetta svæði býður upp á ótal möguleika á stuttum, fallegum og fjölbreyttum göngu-leiðum við allra hæfi.
Við gerum ráð fyrir að fara í góða göngutúra alla daga en áskilum okkur rétt til að aðlaga prógrammið að veðri. Gengnir verða uþb 10 km á dag í 2-3 styttri gönguferðum með hvíld á milli. Þessi ferð er hugsuð fyrir þá sem vilja ekki fara hratt yfir, njóta en ekki þjóta. Allar göngurnar eru á flatlendi og ættu að vera við allra hæfi og eru hugsaðar út frá því að hægt sé að stytta þær og lengja, allt eftir þörfum fólks.
Gist verður notalegu hóteli, hótel Kviku í Ölfusi í 2 nætur og konum gefst tækifæri á að nýta sér heitan pott og gufubað eftir hressandi útivistardag.
Dagskrá:
Dagur 1: Þriðjudagur
Lagt af stað í rútu úr Reykjavík kl. 09:00 og ekið sem leið liggur að Kleifarvatni. Við göngum meðfram vatninu og skoðum magnað hverasvæði, Engjahver og Seltún. Eftir góða nestispásu göngum við eftir gamalli þjóðleið undir Geitahlíð og skoðum m.a. gíginn Stóru Eldborg. Þetta er dásamlegt svæði sem fáir hafa séð þó það finnist við túnfót höfuðborgarsvæðisins.
Efir góðan útivistardag er stuttur akstur heim á hótel Kviku þar sem við að sjálfsögðu tökum léttar teigjur með hamingjustund (happy hour), nýtum okkur heita potta og gufubað. Eftir góðan kvöldverð njótum við kvöldsólarinnar í setustofunni í glerskálanum.
Samtals ganga u.þ.b. 4-5 klst. 6-10 km
Dagur 2: Miðvikudagur
Morgunnmatur á hótelinu frá kl. 8-10. Eftir morgunnmat ökum við að Hlíðarvatni þar sem ganga dagsins hefst. Við ætlum að ganga gamla þjóðleið, Herdísarvíkurgötu, meðfram ströndinni að Strandakirkju. Eftir heimsókn í kirkjuna, heimsækjum við ábúendur, fræðumst um svæðið og skoðum gallerý. Eftir hádegisverð í kaffihúsinu höldum við áfram göngunni að Selvogsvita. Stuttur akstur á hótel.
Samtals ganga u.þ.b. 4 - 5 klst.
Dagur 3: Fimmtudagur
Stuttur akstur að Eyrarbakkafjörum þar sem við göngum ca 5 km eftir fjörunni að Eyrarbakka. Á Eyrarbakka tökum við hús á hjónunum Ástu Krisrúnu og Valgeiri Guðjónssyni í Bakkastofu. Þar miðlar Ásta skemmtilegum fróðleik um þetta gamla merka þorp, Valgeir tekur lagið auk þess sem veitingar verða bornar á borð.
Eftir heimsókn og hádegisverð förum við í fuglaskoðun með fuglafræðingi í Friðlandi í Flóa. Áætluð koma til Reykjavíkur er um fimmleitið.
Samtals ganga 3 - 4 klst.
Verð:
-
110.000, - kr á mann í tveggja manna herbergi
-
135.000, - kr á mann í eins manns herbergi
Innifalið:
-
Akstur og leiðsögn í 3 daga
-
Gisting í tveggja manna herbergi í 2 nætur með morgunmat
-
2ja rétta kvöldverður bæði kvöldin
-
2 x hádegisverðir
-
Heimsóknir og uppákomur
Ekki innifalið:
-
Nesti á degi 1
-
Drykkir á hótelinu
Búnaðarlisti:
-
Gönguskór með góðum sólum
-
Bakpoki með primaloft/dúnúlpu, regnfötum, sólvörn, nesti og vatnsbrúsa
-
Snyrtileg föt fyrir kvöldverðinn, sundföt