
Víknaslóðir
Ævintýri frá Seyðisfirði til Borgarfjarðar eystri
Dagsetningar:
20. - 24. júlí 2027
Loksins, loksins! Við erum aftur með hina stórkostlegu Víknaslóðaleið á dagskrá sumarið 2027.
Víknaslóðir eru ein fallegasta og heillandi gönguleið Íslands. Leiðin liggur um afskekktar víkur og dali milli Seyðisfjarðar og Borgarfjarðar eystri, þar sem áður var blómlegt mannlíf en síðustu bæirnir fóru í eyði árið 1974. Hér mætast stórbrotin náttúra, rík saga og kyrrð fjarri ys og þys hversdagsins.
Á þessari fjagra til fimm daga ferð göngum við um fjölbreytt landslag, yfir gamlar þjóðleiðir, um grösuga dali og yfir fjallaskörð með stórkostlegu útsýni yfir eyðifirði og úthaf. Ferðin hefst á Seyðisfirði, þar sem brött grágrýtisfjöllin rísa tignarlega beggja vegna fjarðarins, og endar í litadýrð líparítsins við Borgarfjörð eystri, þar sem Dyrfjöllin gnæfa yfir landslaginu.
Á leiðinni gistum við í notalegum og vel útbúnum skálum, njótum góðs matar, félagsskapar og gefum okkur tíma til að upplifa allt það sem þetta einstaka svæði hefur upp á að bjóða.
Þegar á Borgarfjörð eystri er komið er hægt að bæta við einni nótt á gistiheimilinu Álfheimum og göngu í hina ævintýralegu Stórurð – eina af náttúruperlum Austurlands.
Þetta er ferð fyrir þau sem vilja upplifa íslenska náttúru í sinni stórbrotnustu mynd, ganga um söguslóðir og njóta góðs félagsskapar í einstöku umhverfi.
Verð: 158.000 kr
Auka nótt á Borgarfirði eystri plús ganga í Stórurð: 22.000 kr
Innifalið í verði:
-
Þrjár nætur í gönguskálum, í svefnpokaplássi.
-
Fullt fæði frá kvöldverði á fyrsta degi.
-
Leiðsögn alla ferðina.
-
Farangursflutningur milli gististaða.
Ekki innifalið:
-
Flug eða önnur ferð til Egilsstaða og heim aftur.
-
Nesti á degi 1
-
Nasl í bakpokann, svo sem hnetur og súkkulaði.
-
Kaldir drykkir.
-
Gisting á Borgarfirði eystri í tveggja manna herbergjum með morgunverði og nesti. Sú gisting greiðist sérstaklega.
Dagskrá:
Dagur 1 – Seyðisfjörður til Loðmundarfjarðar
14 km | 5–6 klst. ganga | 550 m hækkun og lækkun
Ævintýrið hefst á Egilsstaðaflugvelli að morgni fyrsta dags. Þaðan tökum við rútu niður á Seyðisfjörð, þar sem við stoppum stuttlega áður en haldið er út með firðinum að Selstöðum. Þar hefst fyrsta gangan okkar.
Við göngum yfir Hjálmardalsheiði, gamla þjóðleið sem áður tengdi byggðirnar, og niður Hjálmardal. Á leiðinni opnast stórkostlegt útsýni yfir Loðmundarfjörð til norðurs og Skálanesbjarg til suðurs. Landslagið er hrikalegt og fallegt og við finnum fljótt fyrir því hversu sérstakt svæði við erum komin inn á.
Þegar niður í Loðmundarfjörð er komið göngum við meðfram æðarvarpinu á Sævarenda áður en við höldum að Klifpsstöðum, þar sem við komum okkur fyrir í notalegum skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs.
Ef tími og orka leyfa verður tilvalið að rölta að gömlu kirkjunni á Klifpsstöðum og njóta útsýnisins við fallega Kirkjufossinn. Að loknum viðburðaríkum göngudegi tekur við gleðistund og dýrindis kvöldverður.
Dagur 2 – Loðmundarfjörður til Húsavíkur
11 km | 4–5 klst. ganga | 400 m hækkun
Eftir góðan morgunverð leggjum við af stað með norðanverðum Loðmundarfirði og komum við í Stakkahlíð. Þaðan liggur leiðin yfir Nesháls og niður í Húsavík.
Á þessari leið er ekki ólíklegt að rekast á hreindýr á beit í sínu náttúrulega umhverfi. Við njótum útsýnisins yfir víðáttumikið landslagið og finnum hvernig kyrrðin og einangrunin einkenna þessar gömlu byggðir.
Í Húsavík gistum við í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Húsavík er ein af eyðivíkunum á milli Loðmundarfjarðar og Borgarfjarðar eystri. Þar var áður búið en síðasti bærinn fór í eyði árið 1974. Það er sérstök upplifun að ganga um þessar slóðir og velta fyrir sér lífinu sem hér var áður fyrr.
Dagur 3 – Húsavík til Breiðavíkur
13–14 km | 5–6 klst. ganga
Í dag bíður okkar ferð inn í stórkostlegt líparítslandslag þar sem Hvítserkur, eitt sérkennilegasta og fallegasta fjall landsins, verður áberandi í landslaginu.
Við höfum tvo möguleika á leiðinni eftir veðri og aðstæðum. Annar kosturinn er að fylgja veginum stuttan kafla, ganga um Víknaheiði og þaðan niður í Breiðuvík. Hinn kosturinn liggur upp Gunnhildardal, fram hjá Herjólfsvíkurvarpi og fyrir Leirfjall, þaðan sem útsýnið niður í Herjólfsvík er einstaklega fallegt.
Þegar við komum í skálann og höfum komið okkur fyrir gefst tími til að njóta umhverfisins og rölta niður að sjó. Breiðavík er, eins og nafnið gefur til kynna, breið og mikilfengleg strönd með ljósum líparítsandi. Fyrir þau sem hafa gaman af sjósundi er þetta frábært tækifæri til að skella sér í sjóinn!
Dagur 4 – Breiðavík til Borgarfjarðar eystri
15 km | um 800 m hækkun og lækkun
Lokadagur göngunnar á Víknaslóðum er sannkölluð náttúruveisla. Við yfirgefum Breiðuvík og höldum yfir í Brúnuvík um Syðravarp og Súluskarð. Á leiðinni njótum við stórkostlegs útsýnis yfir Kjólsvík og Hvalvík og til Glettings, austasta tanga landsins.
Í Brúnuvík gefum við okkur góðan tíma til að hvíla lúin bein, njóta umhverfisins og jafnvel kæla fæturna í sjónum áður en við tökum síðasta sprettinn yfir í Bakkagerði á Borgarfirði eystri.
Þar bíður okkar notaleg gisting á Gistiheimilinu Álfheimum fyrir þau sem hafa bókað hana. Eftir kvöldverð er tilvalið að skella sér á tónleika í Fjarðarborg, en tónlistarhátíðin Bræðslan setur skemmtilegan svip á bæinn á þessum árstíma.
Dagur 5 – Stórurð
Gönguleið valin eftir veðri og aðstæðum
Við ljúkum ferðinni með heimsókn í eina mögnuðustu náttúruperlu Austurlands – Stórurð.
Við keyrum saman að upphafsstað göngunnar í Njarðvík. Þar höfum við nokkrar leiðir að velja og ákveðum hvaða leið hentar best með hliðsjón af veðri, aðstæðum og getu hópsins.
Stórurð er einstakt náttúrufyrirbæri þar sem risavaxnir klettadrangar, sem fallið hafa úr Dyrfjöllum, liggja á víð og dreif um svæðið. Milli þeirra eru tærar tjarnir með blágrænu jökulvatni og landslagið er engu líkt. Við gefum okkur góðan tíma til að ganga um svæðið, njóta útsýnisins og taka inn þessa ótrúlegu náttúrufegurð.
Að göngu lokinni sjáum við um að koma ykkur á þann stað sem þið kjósið að enda þetta frábæra ferðalag.
Gott að vita
-
Skálar Ferðafélags Fljótsdalshéraðs á Víknaslóðum eru vel útbúnir gönguskálar með sturtu- og þurrkaðstöðu.
-
Gist er í svefnpokaplássi á svefnlofti þar sem hópurinn gistir saman í einu rými.
-
Farangurinn er fluttur á milli gististaða með trússbíl. Því þarf aðeins að bera nesti, vatn og hlífðarfatnað í dagbakpokanum.
-
Við áskiljum okkur rétt til að breyta gönguleiðum og dagskrá eftir veðri, aðstæðum og heilsu og getu hópsins.
Flug austur
Fyrir þau sem ætla að fljúga frá Reykjavík til Egilsstaða er best að bóka flug sem lendir kl. 07:30 að morgni fyrsta dags, svo við náum að hefja ferðina samkvæmt áætlun.
Bókaðu núna














