top of page
IMG_9406.jpg

Dólómíta og Prosecco hæðir

Þessi ferð er einstök upplifun sem býður upp á ógleymanlega blöndu af því besta  sem tvö heimsminjaskráarsvæi UNESCO bjóða uppá. Við göngum um stórbrotna náttúru hinna goðsagnakenndu Dólómítafjalla með hrikalegum hvítkölkuðum klettaveggjum og ævintýralegu fjallaútsýni. Síðan njótum við sólríka Prosecco-svæðisins, þar sem gróskumiklar hæðir  mynda kjöraðstæður fyrir vínþrúgur ítalska gæðavínsins Prosecco.

Ferðin sameinar hæfilega hreyfingu, náttúrufegurð, menningu og  vínsmökkun. Þessi ferð er tilvalin fyrir vinahópa.

 

Dagsetning : 18. - 25. september 2026

Verð: 359.000 kr 
 

DAGSKRÁ:

 

Dagur 1: Flugdagur

Flogið frá KEF  til Feneyja. Rútuferð í 2 klst  upp í hinn fræga skíða og útvistarbæ Cortina. Gisting á góðu hóteli í miðbænum.

Dagur 1: Fjallasalir Cortina.
Eftir morgunverð tökum við Faloria kláfinn sem liggur frá miðbæ Cortina upp á upp á Mt. Faloria sem er í 2,120 m hæð. Þaðan göngum við niður fallega leið sem er kölluð "panorama trail"og ekki að ástæðu lausu. Við fáum frábært útsýni yfir bæinn Cortía og allann fjallgarðinn þar í kring. Leiðin  liggur í átt að Þriggja tinda hálsinum, Passo Tre Croci. Eftir að þangað er komið getum við valið um að halda áfram ganagandi niður til Cortína eða slaka á, taka lyftu upp á ftottan hádegisstað og taka svo strætó eða taxa niður í bæ.
 Leiðin er c.a  hækkun 75 m, lækkun. 975 m 4 tíma ganga og aðeins lengra ef gengið er niður til Cortína.

 

Dagur 3: Tindarnir þrír -Three Peaks.  

Dagurinn hefst með stuttu skutli upp í skálan Auronzo sem er beint fyrir neðan hina heimsfrægu “Tree Peaks”. Í fjallastríðinu í fyrir heimstyrjöldinni börðust Ítalía og Austurríki-Ungverjaland um þessa glæsilegu tinda sem eru líklega þekktasta bergmyndun  Dólómítafjallanna.   Við höfum möguleika á að a. ganga hálfhring í kringum tindana og niður í Rienz-dalinn til Dreizinnenblick þaðan sem við tökum rútu eða b. ganga heilan hring í kringum tindana.

  1. Hækkun 300, lækkun  1.000 m.  13 km, 5 klst ganga

  2. Hækkun 350, Lækkun 350 m. 9 km, 4 klst ganga

 

Dagur 4: Cortina – Cinque Torri – Veneto

Í dag fáum við skutl upp að hinum þekktu Cinque Torri, sem eru fimm stakstæðir klettastapar. Þetta svæði er er eitt af vinsælustu útivistarsvæðum Dólómítanna sem göngu, skíða og klifursvæði. Við göngum hringinn í kringum stapana fimm með mögnuðu útsýni og skoðum m.a sögufrægt útisafn frá fyrri heimstyrjöldinni.

Eftir göngu dagsins bíður okkar einkarúta sem keyrir okkur niður í Prosecco hæðir á dásamlegt hótel í litlum bæ með sundlaug og spa. Kvöldverður á hóteli.

Hækkun 560 m, lækkun 360 m. 9 -11 km, 4-5 klst. ganga.
 

 

Dagur 5: Tarzo - Arfanta - Pieve di Soligo

Við byrjum göngu dagsins á að ganga meðfram fallegum vatni Lago de Santa Maria. Eftir stutt kaffi stopp í bænum Tarzo fykrum við okkur  inn í Prosecco hæðirnar.

Við göngum í gengum skóglendi og vínræktarsvæði og eftir þægilega hækkun komum við í lítið þorp sem heitir Arfanta þar sem við fáum okkur hádegisverð, Þaðan er dásamlegt útsýni yfir þorp og hæðirnar allt um kring. Við höldum áfram göngunni til Bivacco Marsini að endurgerðri 17. aldar vatnsmyllu sem heitir Molinetto della Croda. Við höldum áfram í gegnum lítinn bambusskóg og í gegnum vínrætarland til Soligo. Heimskókn á vínbúgarð, vínsmökkun og kvöldverður.

12 km , u.þ.b. 5 klst. ganga

 

Dagur 6: Col San Martino - Soligo 

Þessi dagleið býður upp á óviðjafnanlegt útsýni. Stígurinn okkar liggur í hlykkjum um vínviðarþaktar hæðirnar í Soligo. Þarna erum við stödd í mekka Procecco og ef við erum heppin fylgjumst við með þegar verið er að handtína berin af runnunum.

Eftir stutt skutl í Col San Martino og smá klifur komum við upp að fallegu litlu kirkjunni San Gallo og gulrótin á toppnum er dásamlegur lítill veitingastaður þar sem við fáum okkur hádegisverð með möguleika á vínsmökkun í hjarta Prosecco vínræktarsvæðisins. Áfram er haldið fram hjá Col Bria að helgidómnum Collagù en nafnið er dregið af beittri lögun fjallsins ofan við helgidóminn.  Við höldum áleiðis niður með hryggnum í átt að Soligo og endum á hótelinu, kvöldverður á fallegum veitingastað rétt við hótel.

11 km, u.þ.b. um 5 klst. ganga

 

Dagur 7: Pieve di Soligo - Feneyjar 

Þessi dagur býður upp á ný ævintýri. Hér getum við valið um að fá rafmagnshjól og hjóla áleiðis til Feneyja meðfram hinni sögufrægu á Pieve eða fara í siglingu niður eftir ánni til Feneyja.

Eftir komu til Feneyja förum við saman og skoðum borgina.

Gist í Mestre.
 

Dagur 8: Heimflug frá Feneyjum 

 Skutl út á flugvöll og  flug heim.

Tilvalið er að lengja ferð og njóta Feneyja.

 


Innifalið

  • Gisting á 3. og 4. * hótelum með morgunverð í 7 nætur

  • 3 x kvöldverðir 

  • 1 x vínsmökkun 

  • Farangurstrúss milli hótela

  • Allt skult skv. dagskrá 

  • Íslensk fararstjórn og leiðsögn

 

Ekki Innifalið

  • Millilandaflug 

  • Kvöldverðir í Cortina 

  • Hádegisverðir

  • Drykkir

  • Gistináttaskattur

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page