
Ferðaskíði í Bjarnafirði 2026
Dagsetening:
12.-15. mars 2026
Skíðaganga er ein besta og skemmtilegasta hreyfing og útivist sem hægt er að finna á veturna. Við ætlum að bjóða ykkur norður á Strandir, þar sem við gistum 3 nætur á notalegu hótelinu okkar, Laugarhóli í Bjarnafirði. Ferðast verður út frá hóteli, annað hvort setjum við á okkur skíðin á hlaðinu eða við nýtum okkur stutt skutl til að kanna nýjar leiðir. Gist verður í tveggja og þriggja manna herbergjum með sérbaði. Hótelið býður upp á flottan íþróttasal sem við nýtum í teygjur, jóga og dans, kósý setustofu og síðast en ekki síst heita sundlaug með náttúrulaug þar sem frábært er að slaka á eftir skíðadaginn.
Þessi ferð er hugsuð fyrir alla ferðaskíðaiðkendur, byrjendur jafnt sem lengra komna.
Bjarnarfjörður býður upp á endalausa möguleika og er dásamtlegt fyrir alla sem vilja komast í stutt frí í sveitinni með þægilegri hreyfingu og góðri slökun.
Sjá heimasíður hér:
Verð: kr 125.000
Innifalið:
-
Leiðsögn
-
Gisting í 3 nætur með morgunverð í tveggja manna herbergi
-
2 kvöldverðir
-
2 nesti
Ekki innifalið:
-
Akstur í Bjarnafjörð
-
Kvöldverður á komudegi
-
Drykkir
-
Hádegisverður á degi 4
Dagskrá:
Dagur 1: Bjarnafjörður
Ekið er á einkabílum seinnipart í Bjarnafjörð þar sem við komum okkur fyrir á hótelinu. Möguleiki á að slaka á í heitri útisundlauginni. Undirbúningsfundur kl. 20:30.
Kvöldverður ekki innifalinn.
Dagur 2: Bjarnafjörður - Sunndalur
Skíðað frá hóteli inn að mynni Goðdals. Þaðan höldum við áfram inn í Sundal. Eftir stutt nestisstopp skíðum við niður með Fjarðaránni heim á hótel.
Hringleið 10-13 km ganga, ca 5 klst., hækkun/lækkun óveruleg.
Dagur 3: Trékyllisheiði - Bjarnafjörður
Eftir morgunverð fáum við skult upp á Bjarnarfjarðahálsinn. Við skíðum norður eftir Trékyllisheiðinni eftir gamalli þjóðleið. Ef snjóalög leyfa reynnum við okkur rólega niður í Sunndalinn og heima á hótel.
Teigjur og jóga í salnum, sund, happy hour og 2ja rétta kvöldverður.
12-14 km ganga, hækkun, 300m hækkun/lækkun
Dagur 4: Selárdalur
Síðasta daginn ætlum við að heimsækja aðstöðu skíðafélags Strandamanna í Selárdal. Við setum á okkur skíðin við fína skíðaskálann þeirra og tökum flottan hring í þessum fallega dal. Heimferð (hádegismatur ekki innifalinn).
Möguleikar fyrir skíðaleiðir eru margar svo við áskiljum okkur rétt til að breyta leiðum eftir snjóalögum og veðri.











