top of page
IMG-20241104-WA0018.jpg

Rafmagns fjallahjólaferð í Dólómítafjöllum 

Dagsetning: 31.ágúst-7. september 2025.   

Í ár ætlum við að bjóða upp á skemmtilega nýjung, fjalla-rafhjólaferð í Dólómítunum. Við munum hjóla í gegnum þrjá þjóðgarða og upplifa magnaða náttúru hinna goðsagnakenndu Dólómítafjalla; undurfagurt fjallaútsýni, friðsæl vötn, gróskumikla haga, græna skóga og hvítkalkaða klettaveggi. Hjólaleiðin liggur um skógarvegi og breiða fjallastíga og hentar öllum með gótt grunnþol. Gist verður í tveggja manna herbergjum á góðum hótelum. 

Farastjórn: Jón Gunnar Tynes og Hilmar Már Aðalsteinsson

 

Verð á mann í tveggja manna herbergi: kr. 389.000


Innifalið:

  • Flugvallartransfer frá Munchen flugvelli til Toblach/Dobbiaco og til baka 

  • Gisting á 3. og 4. * hótelum með morgunverði í 7 nætur

  • 4 kvöldverðir

  • Farangurstrúss milli hótela

  • Leiðsögn 

  • Leiga á rafmagns fjallahjóli

 

Ekki innifalið:

  • Millilandaflug 

  • Drykkir

  • Hádegisverðir

  • Kvöldverðir í Cortina og í Munchen

  • Ferðatrygging og Gistináttagjald


Leiðarlýsing:


Dagur 1: 31. ágúst,  Keflavík – Munhen -Toublach 
Brottför með flugi Icelandair  kl 7:20. Í Munchen  bíður okkar rúta sem ekur okkur til bæjarins Toublach í ítölsku Dólómítuntum  (4.5 kls akstur ) þar sem við gistum fyrstu nóttina.

Dagur 2: 1. september, Toublach (Dobbiaco ) - San Vigilio 

Eftir morgunverð og afhendingu á hjólunum hefjum við  fyrsta hjóladaginn á að hjóla eftir malbikuðum stíg og síðan tekur við  hækkun upp í  Kronplatz sem er í 2275 m hæð. Fyrir þá sem vilja létta sér lífið er hægt að taka kláf síðasta partinn ( miði ekki innifalinn).

Kronplatz er vinsæll áfangastaður hjá útivistafólki allt árið um kring. Á toppi fjallsins er frábært útsýni til allra átta. Eftir hádegisverð og gott stopp rennum við okkur niður til San Vigilio og tékkum okkur inn á dásamlegt hótel með heilsulind.

55 km hækkun 1490 m eða 45 km hækkun 220 m.


Dagur 3 : 2. september,  San Vigilio - Cortina 
Í dag höldum við saman af stað inn fallegan dal og eftir stutt stopp í  fjallaskála er um tvær leiðir til Cortina að velja. Báðar leiðirnar bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir fallegustu fjallatinda Dólómítana: Hohe Gaisl (3146m), Cristallo (3221m), Sorapis (3221m), og Tofane (3243m).

Eftir hádegisverð í fjallaskála  er brunað niður gegnum Fanes dalinn og til fjallabæjarins Cortina s'Ampezzo þar sem gist verður næstu 2 nætur.

Cortina er þekktur fjallabær í norðanverðri Ítalíu, staðsettur í hjarta Dólómítanna. Bærinn er einn vinsælasti áfangastaður Ítalíu fyrir útivistarfólk og er oft kallaður „Perla Dólómítanna“ vegna óviðjafnanlegrar náttúrufegurðar sinnar.

36 km hækkun 1000 m eða  45 km 1300 m hækkun.


Dagur 4: 3. september, Cortina - Cinque Torri -Cortina 
Þessi hjóladagur bíður upp mjög fallega útsýnishjólaleið um Ampezzo svæðið. Frá Cortina er hjólað upp að Gheghina vatni og áfram að hinum frægu Cinque Torri, fimm ávölum kletta turnum sem mynduðu eitt sinn eitt af hæstu fjöllum Dólómítana, Monte Pelmo. Eftir hádegisverð og stutta göngu um sögufrægt úti safn úr  fyrri  heimstyrjöldinni  er snúið aftur aðra leið til Cortina.

45 km 1900 m hækkun og lækkun.


Dagur 5 : 4. september,  Cortina - Prado Platzwiese 
Í dag yfirgefum við fallega bæinn Cortina og hækkum okkur rólega upp til Rio Gere þar sem við höfum möguleika á að taka  stólalyftu áfram upp, áður en við rennum okkur milli fjallatinda niður í hinn fræga Lavarendo dal þar sem þjóðleiðin milli Toublach og Cortina liggur. Eftir gott stopp í skála hefjum við klifur upp á hásléttuna þjóðgarinn Platzwise. Þegar upp er komið verður stór kaldur bjór vel þeginn í fjallaskála sem staðsettur er á brún háslétturnnar með óviðjafnanlegt útsýni yfir tindana Tofana, Monte Cristallo og Tre Cime.  Við rennum okkur inn að hóteli þar sem við látum líða úr okkur í notalegri heilsulind hótelsins.

44-55 km hækkun 1800 -2100 m ​

Dagur 6: 5. september, Prado Piazza - Lago Braies -Toublach 

Eftir Morgunverð rennum við okkur af stað í síðasta hjóladaginn.

Við þræðun ljúflega stíginn niður af hásléttunni og niður í Braiesdalinn sem þjóðgarðurinn er kenndur við. Við  stoppum í góða stund  við  Braies vatnið sem er frægt fyrir fegurð og útsýni. Ef tími gefst til, leggjum við hjólunum og göngum hringinn í kringum vatnið áður en við höldum áleiðis til Toublach, bæjarins þar sem ferðin okkar hófst.

Við gistum á fallegu hóteli með sundlaug og spai svo það þarf enginn að koma heim þreyttur eftir þessa mögnuðu hjólaferð.

35 km 800m lækkun, hækkun óveruleg.


Dagur 7: 6. september, Munchen

Eftir góðan nætursvefn og morgunverð fáum við rútu sem flytur okkur til Munchen. Gist verður á hóteli í útjaðri Munchen með auðveldu aðgengi að miðbænum.  

Dagur  8: 7. september,  heimferð
Skult frá hóteli á flugvöll í flug heim til Íslands.

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page