top of page
WhatsApp Image 2025-05-19 at 14.09.48_8711dd53.jpg

Rafhjólaferð við rætur Heklu og Fjallabaks.
2ja daga hjólaferð
15.-17. ágúst 2025

Í þessari ferð ætlum við að hjóla og njóta umhverfisins við rætur Heklu og kíkja aðeins inn á fjallabak niðri eða nánar tiltekið inn á Dómadal.

Þetta er lúxus ferð þar sem við ætlum að gista 2 nætur á hótel Leirubakka í tveggja manna herbergjum með uppábúnum rúmum og fullu fæði.

Umhverfið býður uppá einstaklega flottar, fjölbreyttar og viðráðanlegar  hjólaleiðir og ekki skemmir fyrir að geta slakað á í heitum pottum í lok hjóladags.​​

Verð: 99.000 kr á mann

Dagskrá:

 

Dagur 1:Föstudagur 15. ágúst.

Lagt af stað úr Reykjavík um miðjan dag á föstudag á einkabíkum.

Hópurinn hittist á hótel Leirubakka, kemur sér fyrir á hóteli og leggur af stað í stuttan hjólatúr um nærumhverfi  hótelisins  kl.18.00.

Kvöldverður og fundur í heitapottinum.

 

Dagur 2: Laugardagur 16. ágúst 

Morgunverður, nestisgerð og hjólin gerð klár.

Í dag ætlum við að hjóla upp með Ytri Rangá, sjá hvar og hvernig upptökin eiga sér stað áður en haldið er áfram niður með Þjórsá.

Á þessari leið er margt að sjá, Tröllkonuhlaup, Þjófafoss, tekið nesti í skóginum í  Skarfanesi áður en haldið er áfram niður með ánni.

Þegar heim á hótel er komið tekur við grill, heitur pottur og partý.

Hjólaðir verða 45 - 50 km hækkun og lækkur óveruleg.

Dagur 3: Sunnudagur 17. ágúst 

Eftir morgunverð og nestisgerð, tékkum við okkur út af hótelinu og keyrum áleiðis inn á Dómadal eða nánartiltekið í Áfangagil. Þar tökum við hjólin af og hefjum daginn.

Hjólað verður skemmtileg og flott leið um slóða Dómadalsleiðar. 

Við þræðum okkur milli flotta gíga úr  Heklugosum fyrri ára, skoðum Valagjá ofl.

Túrinn endar svo aftur í Áfangagili þar sem við setjum hjólin á og keyrum áleiðist heim á leið með mögulegu stoppi í góðri sundlaug.

Hjólaðir verða 35 -38  km hækkun og lækkun 300 - 400 m 

Verð: 99.000, - kr á mann 

Innifalið:

  • Gisting í tveggja manna herbergjum með uppábúnum rúmum í tvær nætur.

  • 2 x morgunverður 

  • 2 x nesti 

  • 2 x kvöldverður 

  • leiðsögn með 2 leiðsögumönnum

 

Ekki innifalið:

  • Akstur og bensín 

  • Drykkir 

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page