top of page
IMG_8113.jpg

Reykjafjörður nyrðri

Dagsetning:
21. - 24. Júlí 2024    Uppseld 

Dagur 1

Við hittumst á bryggjunni í Norðurfirði þaðan sem siglum í Reykjafjörð. Siglingin tekur ca. 2 klst. Dótið er ferjað heim í hús þar sem við komum okkur fyrir. Nærumhverfið kannað með léttri göngu og nokkrum teygjum á ströndinni áður en við tökum nokkur sundtök og slökum á í stærsta heita potti landsins. Það er spurning hvort við setjum flothettu á óskalistann fyrir jólin? "Happy hour" kvöldmatur með öllu sem því fylgir.

 

Dagur 2 
Eftir morgunmat og nestisgerð er haldið í göngu dagsins. Gengið verður á Geirólfsnúp sem er bæjarfjall Reykjafjarðar. Við byrjum á að vaða Reykjafjarðarósinn áður en haldið er inn í Sigluvík, Sigluvíkurdal og þaðan upp á Geirólfsnúp sem er 433 m. Í góðu skyggni er ægifagurt útsýni  norður á Hornbjarg og suður til Drangaskarða. Að lokinni göngu eru teygjur og slökun í heitu lauginni, "happy hour" kvöldmatur og fjör fram á nótt.
15 km ca 6 tímar á göngu.

 

Dagur 3 
Hægt er að velja um að ganga hring fyrir Þarlátursnesið, inn Þarlátursfjörð og yfir hálsinn til baka í Reykjafjörð samtals 11 km,  eða fara yfir í Þarlátursfjörð, vaða ána og ganga út að Könnu, sem er stór klettadrangi í mynni Þarlátursfjarðar og sömu leið til baka. 12-13 km. Sjósund, heita laugin, teygjur, slökun, kvöldmatur, varðeldur söngur, glens og gaman fram á nótt.

Dagur 4
Eftir morgunmat og frágang ætlum við að ganga áleiðis inn að jökli og ræðst lengd göngunnar eftir  veðri og vindum. Eftir hádegi fáum við fjórhjólaskutl fyrir farangurinn í bátinn sem kemur kl 15.00 og siglir með okkur til baka í Norðurfjörð. Áætluð koma í Norðurfjörð er um kl. 17.00-17.30.

 

Verð: 141.000 kr 

Innifalið:

•Leiðsögn

•Gisting í 3 nætur

•Fullt fæði frá kvöldverði á degi 1 til hádegisverðar á degi 4.

•Bátsferð í frá Norðurfirði í Reykjafjörð og til baka ásamt farangursskutli

Ekki innifalið:

•Ferðir til og frá Norðurfirði

•Hádegisnesti á degi 1

•Áfengir drykkir

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page