top of page
6.jpeg

Svigskíðasafarí með Tóta

​Langar þig í skíðaferð sem sameinar ævintýri, lúxus og ógleymanlega upplifun?
Komdu með okkur í einstakt skíðasafarí um eitt fegursta fjallasvæði heims – Dólómítana á Ítalíu.

Á sex dögum á svigskíðum ferðumst við um fimm stórbrotin skíðasvæði með því að nýta hið magnaða Dolomiti Superski kerfi, þar sem brekkur og lyftur tengjast á ótrúlegan hátt. Þetta er ferð þar sem hver dagur býður upp á nýtt landslag, nýjar brekkur og ný ævintýri.

Við gistum á þremur vel völdum 3–4 stjörnu hótelum með heilsulindum og frábærum veitingastöðum, og farangurinn ferðast á milli staða fyrir þig – þú þarft bara að njóta.

Fararstjóri er hinn reyndi skíðaþjálfari Þórður Georg Hjörleifsson (Tóti Hjöll), sem tryggir bæði faglega leiðsögn og skemmtilega stemningu allan tímann.

Ferðin er ekki fyrir byrjendur. Þessi ferð getur hreinlega ekki klikkað.

Verð: 370.000 kr. á mann í tvíbýli

Dagsetningar  23. - 30. janúar 2027

Fararstjóri: Þórður Georg Hjörleifsson (Tóti)

 

Dagur 1: Brottfaradagur

Flugið er ekki innifalið en mælum með að fljúga á Salzburg. Flugvallarskutl miðast við Salzburg en getum einnig græjað skutl frá München eða Feneygja fyrir 6 eða fleiri.

Gist fyrstu tvær næturnar í Toublach (Dobbiaco) á frábæru hóteli með heilsulind.

Dagur 2: Mt Elmo

Dagurinn hefst með nokkurra mínútna lestarferð uppá Mt Elmo skíðasvæðið við hlið hinna goðsagnakenndu Three Peaks með útsýni yfir til Austurríkis. Þetta svæði  býður upp á fjölbreytt úrval brekka af mismunandi lengdum og erfiðleikastigum m.a.  4,5 kílómetra langa  Elmoissimo-brekkuna eða  svörtu, krefjandi Holzriese-brekkuna.

Í lok dags tökum við lestina heima á hótel og nýtum okkur heilsulindina.

Dagur 3: Kronplatz (Plan de Corones)

Við fáum örstutt skutl til Brunico þar sem við tökum kláfinn upp til Kronplatz. Kronplatz er eitt vinsælasta skíðasvæði Dólómítanna, þekkt fyrir breiðar, vel troðnar brekkur, nútímalegar lyftur og stórbrotið útsýni yfir fjöllin. Við eyðum deginum á svæðinu og tökum hádegispásu á toppnum þar sem hægt er að heimsækja Reinhold Messner safnið sem er tileinkað fjallamennsku og stofnað af Reinhold Messner, einum frægasta fjallgöngumanni heims.

Við endum daginn á því að skíða yfir til St. Vigil (San Vigilio di Marebbe) sem er lítill fallegur fjallabær í hjarta Dólómítanna. Þar gistum við næstu tvær nætur á dásamlegu fjallahóteli með heilsulind.

Dagur 4: Alta Badia

Í dag skíðum við frá St. Vigil yfir í skíðarútu sem flytur okkur til Alta Badia sem er á hinum fræga Sella Ronda hring. Hér ætlum við að velja bestu brekkurnar af endalausum möguleikum eða skíða hringinn ef stemning er fyrir því.

Í lok dags höldum við aftur á hótelið í  St. Vigil.

Dagur 5: Lagazuoi og Cortina

Við ferðumst aftur yfir í Alta Badia og skíðum áfram yfir í Passo Falzarego og endum í einni fallegustu brekku Dólótítana, Armentarola ísfossaleiðina. Við fáum hestadrátt síðasta kaflann að lyftunni og tökum Lagazuoi kláfinn upp á topp.  Endum daginn á að skíða eða fá rútuskut  til Cortina d’Ampesso þar sem við gistum í þrjár nætur. Cortina d’Ampezzo er glæsilegur og líflegur skíðabær í hjarta Dólómítanna, þekktur fyrir stórbrotið fjallaútsýni, fjölbreyttar skíðabrekkur og einstakt andrúmsloft. Bærinn sameinar fyrsta flokks skíðasvæði, góða veitingastaði og fallega verslunargötu, og er oft kallaður „drottning Dólómítanna“.

Dagur 6 og 7: Cortina d’Ampesso

Síðustu tvo dagana skíðum við á skíðasvæðinu í Cortina, þar sem við skíðum meðal annars  sögufrægar brekkur frá Vetrarólympíuleikunum 1956 og 2026. Við heimsækjum einnig staði þar sem kvikmyndir á borð við 007 – For Your Eyes Only, Cliffhanger og The Pink Panther voru teknar, slökum á og njótum þessarar sannkölluðu „mekku“ Dólómítanna.

Dagur 8: Heimferð

Skutla á flugvöll og flug heim.

Innifalið:

  • Morgunverður 

  • Kvöldverður fyrstu tvö kvöldin

  • Gisting í tvíbýli á góðum hótelum í 7 nætur

  • Skíðapassi

  • Undirbúningsfundur

  • Leiðsögn

  • Farangursskutl

  • Rútuferð frá flugvelli til Toublach (Dobbiaco) á degi 1 og til baka á flugvöll á degi 8

  • Aðgangur að heilsulindum á Hótelunum.

Ekki innifalið:

  • Flug 

  • Hádegisverðir

  • Kvöldverðir fyrir utan fyrstu tvö kvöldin

  • Drykkir

  • Leiga á búnaði (hægt er að leiga búnað)

  • Forfalla- og ferðatrygging.

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page