
Skíðaferðalag um norðanverðar Strandir 2025
Dagsetening:
26.-30. mars 2025
Skíðaganga er ein besta og skemmtilegasta hreyfing og úivist sem hægt er að hugsa sér á veturna. Við höfum sett upp nýjan og spennandi leiðangur á ferðaskíðum um norðanverðar Strandir. Ferðast verður milli fjarða um gamla þjóðleið yfir Trékyllisheiði á ferðaskíðum (utanbrautargönguskíðum) með léttan 6-8 kg bakpoka.
Fyrstu og síðustu nóttina verðu gist á hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði í herbergjum með sérbaði. Hótelið býður upp á flottan íþróttasal fyrir teygjur/ jóga, kósý setustofu og síðast en ekki síst heita sundlaug þar sem frábært er að slaka á eftir daginn. Einnig verður gist á hótel Djúpuvík og í gamla húsinu í Ófeigsfirði.
Þessu ferð er ekki ætluð byrjendum. Hún er ekki tæknilega erfið en dagleiðirnar eru í lengri kanntinum.
Sjá heimasíður hér:
Verð: 158.000 kr
Innifalið:
-
Leiðsögn
-
Gisting í 4 nætur í 2ja til 3ja manna herbergjum (2 nætur með baði og 2 án sérbaðs)
-
3 kvöldverðir
-
3 nesti
-
Skutl og farangursskutl
Ekki innifalið:
-
Akstur í Bjarnafjörð
-
Kvöldverður á komudegi
-
Drykkir
Dagskrá:
Dagur 1: Bjarnafjörður
Ekið er á einkabílum seinnipart í Bjarnafjörð þar sem við komum okkur fyrir á hótelinu. Möguleiki á að slaka á í heitri útisundlauginni. Undirbúningsfundur kl 20:30.
Kvöldverður ekki innifalinn.
Dagur 2: Bjarnafjörður - Djúpavík
Skíðað frá hóteli upp á Trékyllisheiði og niður í Djúpuvík um Kjósarhjalla sem er gamla þjóðleiðin niður í Reykjafjörð. Komið á hótel Djúpuvík þar sem okkar bíður heitur pottur að loknum teygjum , tveggja rétta kvöldverður og gisting í 2ja manna herbergjum.
Skoðunarferð um gömlu síldarverksmiðjuna fyrir þá sem vilja.
22-23 km, ganga, u.þ.b. 7 klst. hækkun/lækkun 700 m
Dagur 3: Djúpavík - Ófeigsfjörður
Eftir morgunverð fáum við skult inn í botn Reykjafjarðar, þaðan sem við skíðum upp Reykjadalinn og skinnum upp á Búrfellsbrúnirnar. Þaðan er ægifagurt útsýni yfir öll helstu fjöll Strandabyggðar m.a. Glissu og Lambatind. Eftir stutt stopp verður haldið áfram fyrir Ingólfsfjörð, þaðan rennum við rólega niður eftir Húsánni til Ófeigsfjarðar. Við gætum þurft að taka af okkur skíðin og ganga síðasta spölinn að húsunum. Ófeigsfjörður er opinn af hafi og þar festir sjaldan snjó. Í húsinu er ekkert rafmang og það er kynnt með rekavið upp á gamla mátann. Við munum upplifa gamla tímann, sem gerir þessa ferð ennþá meira spennandi.
16 km, ganga 4-5 klst. hækkun/lækkun 500 m
Dagur 4: Ófeigsfjörður - Ísafjarðardjúp/Laugarás - Laugarhóll
Eftir morgunverð og frágang höldum við upp með Húsánni. Síðan er stefnan tekin upp á Ófeigsfjarðarheiðina um gamla varðaða þjóðleið yfir í Ísafjarðardjúp. Við skíðum suður fyrir Drangajökul með útsýni til allra átta og áður en langt um líður lækkum við okkur niður í dal sem heitir Hraundalur. Ef heppnin er með okkur ættum við að fá frábært 12 km rennsli niður allan dalinn að Laugarlandi við norðanvert Ísafjarðardjúp. Þaðan fáum við skutl yfir Steingrímsfjarðarheiði og yfir í Bjarnafjörð þar sem við gistum síðustu nóttina.
Góðar teygjur, og heita laugin sjá svo til þess að við vöknum hress næsta dag eftir flottan kvöldverð.
32-34 km 700 m hækkun og lækkun.
Dagur 5: Heimferð
Eftir góðan morgunverð, mýkjum við okkur aðeins upp í lauginni áður en við kveðjumst og höldum heim á leið.