
Tveggja landa skíðagönguævintýri
Sérferð
Dagsetning: 18. - 25. janúar 2025
Fararstjóri: Sigrún Hallgrímsdóttir
Dagur 1: Keflavik – Innsbruck
Flogið frá Keflavík til Innsbruck. Þaðan er 2ja tíma rútuferð um Brennerskarð til Anterselva di Mezzo (Antholz Mittertal) sem er fallegur lítill bær í dalnum Anterselva (Antholz Mittertal) í ítölsku Dólómítunum. Gist verður á þriggja stjörnu hóteli í miðbænum.
Dagur 2: Anterselva di Messo dalurinn
Anterselva dalurinn er algjör skíðagönguparadís með 60 km af sporuðum brautum sem eru yfirfarnar daglega. Við byrjum á því að taka strætó inn dalinn að einu flottasta skíðaskotfimi svæði heims og skíðum til baka. Leiðin liggur yfir frosið Anterselva vatnið í gegnum rómantíka snjóþunga skóga. Við stoppum í hádegisverð í einum af fallegum bæjum á leið niður dalinn. Gist á sama stað.
Dagur 3: Anterselva - Dobbiaco
Í dag fáum við stutt skutl til Monguelfo (Weslberg). Þaðan skíðum við til bæjarins Dobbiaco (Toublach), að gönguskíðamiðstöðinni Nordic Arena, þar sem besta gönguskíðafólk heims keppir á hverju ári um mikilvæg stig á heimsbikarmótinu. Eftir góðan hádegisverð er tilvalið að taka vel á því í keppnissporinu áður en við slökum á í spainu.
Gist næstu þrjár nætur á flottu hóteli rétt við skíðamiðstöðina.
Dagur 4: Dobbiaco – Cortina d’Ampezzo
Þessi dagur býður upp á hringleið frá hóteli að Landro vatni og til baka. Við fylgjum járnbrautarlínum gömlu Dolomitajárnbrautarinnar inn í Landro-dalinn, fram hjá Dobbiaco vatni og höldum áfram að útsýnisstað yfir hina frægu Þríhnjúka. Ef snjóalög leyfa getum við skíðað alla leið til fræga skíðabæjarins Cortina d'Ampesso og til baka með strætó.
Dagur 5: Villabassa/Dobbiaco - hvíldardagur
Í dag höfum við val um að hvíla okkur, heimsækja bæina Brunico eða Cortina, eða fara stuttan
gönguskíðahring í dalnum. Einnig væri hægt að fara í gönguferð í nágrenni Villabassa/Dobbiaco eða kaupa sér gönguskíðakennslu. Gist 3ju nótt í Dobbiaco.
Dagur 6: Ítalía - Austurríki
Við yfirgefum þennan dásamlega stað og skíðum áleiðis til Austurríkis. Við stoppum á leiðinni í fallegum bæ San Candido þaðan sem við höldum áfram til landamærabæjarins Sillian þar sem við eyðum síðustu tveimur nóttum.
Dagur 7: Obertilliach eða Villgarten dalur
Í dag getum við valið um tvær leiðir. Hægt er að fara inn á skíðasvæðið Obertilliach í Lesach dalnum. Þar undirbýr keppnisfólk á heimsmælikvarða sig í 60 km löngum sporum. Einnig getum við tekið rólegri dag og notið friðsældar og slökunar í dalnum Villgarten.
Kveðjukvöldverður og lokanótt.
Dagur 8: Heimferð
Sofið út og pakkað í rólegheitum. Rúta til Innsbruck og flug heim.
Verð: 304.000 kr. á mann í tvíbýli
Flug: Millu og Krilluferðir eiga frátekin sæti í flug með Icelandair (takmarkað magn).
Verðið er 75.000 kr. sætið
Innifalið:
• Hálft fæði (morgunverður og kvöldverður)
• Gisting í tvíbýli á góðum hótelum í 7 nætur
• Undirbúningsfundur
• Leiðsögn
• Farangursskutl
• Rútuferðir til og frá flugvelli.
• Strætó kort.
Ekki innifalið:
• Flug
• Hádegisverðir
• Drykkir
• Leiga á búnaði (hægt er að leiga búnað)
• Forfalla- og ferðatrygging.