top of page
IMG_1055.jpg

Umhverfis Mt. Blanc með Millu og Krilluferðum

Dagsetningar:
22.-29. júní 2025 Blönduð ferð   

Í júní 2025 ætlum við að endurtaka leikinn og bjóða þessa frábæru 8 daga göngu umhverfis Mt Blanc. Þessi geysivinsæla og undurfagra gönguleið hefur slegið í gegn meðal Íslendinga og ekki að ósekju. Gengið verður um dali og fjallaskörð þar sem hver dagur býður upp á nýja sýn á Mt. Blanc og erfiði dagsins er verðlaunað með stórkostlegu og dáleiðandi útsýni yfir jökla, bratta dali og Mt. Blanc, hæsta fjall Alpanna.

Löng hefð er fyrir því að ganga umhverfis fjallið hvíta og gott stígakerfi tengir saman skála og þorp. Við ætlum ekki að ganga allan hringinn en taka allt það besta sem þessi fræga gönguleið hefur upp

á að bjóða. 

Gengnir verða um það bil 80 km í heildina með um og yfir 1000 m hækkun og lækkun á dag. Við göngum frá Chamonix í Frakklandi til Courmayeur á Ítalíu, ásamt því að taka flottustu leiðirnar út frá Chamonix. Allur aðbúnaður er mjög góður, gist verður á litlum hótelum og gistiheimilum, 3 nætur í Chamonix, mekka útivistar í Ölpunum, 1 nótt í Contamines, 1 nótt í Les Chapieux og 2 nætur í Courmayeur sem að sönnu má kalla hina ítölsku háborg alpanna. Þetta er krefjandi ferð svo nauðsynlegt er að vera í góðu formi og undirbúa sig vel!


Hámarksfjöldi í ferð: 20

Farastjórar í ferð : 2


Leiðarlýsing:

Dagur 1:
Beint flug með Icelandair til Genfar. Lent um kl. 13:00. Við förum með rútu til Chamonix og tekur ferðin
um það bil 1 klst. Þegar við höfum tjekkað okkur inn á hótelið er frjáls tími til að njóta bæjarins. Chamonix
er líflegur franskur bær sem er bæði þekktur fyrir mikla náttúrufegurð og sem mekka útivistar.
Gist á Hôtel la Vallée Blanche.


Dagur 2 :
Eftir morgunverð tökum við strætó til Les Houches og þaðan kláf til Bellevue, þaðan sem gengið er upp í
Col Tricot skarðið (2.120 M). Þaðan er magnað útsýni yfir Mt. Blanc tindinn. Áfram er haldið niður í Miage
dalinn í hádegismat. Síðan er gengið til Les Contamines þar sem gist er á huggulegu hóteli í bænum.
Gengið 15 km, hækkun 700 m, lækkun 1300 m

Dagur 3:
Í dag gögnum við eftir gamalli rómverskri þjóðleið upp Armancette dalinn og upp í Bonhomme skarðið
og áfram í Croix de Bonhomme skálan sem stendur í 2500 m hæð. Síðan er gengið niður í Le Chapieaux
dalinn þar sem við gistum í Refuge de la Nova skálanum.
Gengið 17 km, hækkun 1270 m, lækkun 970 m


Dagur 4:
Eftir morgunverð fáum við stutt skult inn dalinn þar sem gangan yfir til Ítalíu hefst. Gengið er upp í Seigne
skarðið (2500 m). Þaðan er frábært útsýni yfir Mt. Blanc tindinn. Þaðan er gengið niður La Visaille dalinn
og tökum strætó síðasta spölinn niður til Courmayeur, sem er þekktur skíða og útivistabær. Gist verður á
hóteli í miðbænum.
Gengið 15 km, hækkun 900 m, lækkun 900 m


Dagur 5:
Dagurinn hefst með stuttu skutli upp í Ferret dalinn. Þaðan höldum við upp í suðurhlíðar dalsins og stoppum í hinum fræga Bonatti skála sem er einn af
flottustu fjallaskálum á svæðinu. Við fylgjum hlíðum dalsins þar sem við okkur blasir ótrúlegt augnakonfekt
hvert sem litið er, tindarnir Mt. Blanc og Mt. Noir ásamt þeirra fjölmörgu systkinum. Við höfum svo möguleika á að taka  strætó aftur niður í Courmayeur eða  ganga niður í bæ.
Gist verður aftur á hóteli  í Courmayeur.
Gengið 10-20 km, hækkun 500 m, lækkun 500-800 m


Dagur 6:
Við fáum skutl í göngin og inn Chamonix dalinn og þræðum okkur upp fjallshlíðina og upp á «Suður Svalirnar» Balcon
de Sud. Áfram höldum við upp að hinu þekkta «Hvíta vatni» Le Lac Blanc. Í lok dags höfum við val um að
ganga niður í Chamonix eða taka kláf síðasta spölinn.
Gengið: 10-15 km, hækkun: 1000 m, lækkun: 500-1000 m


Dagur 7:
Í dag er frídagur í Chamonix. Hægt er að fara með kláf úr miðbænum upp á Aguille du Midi (3842 m) sem
enginn ætti að sleppa. Það sem eftir lifir dag er upplagt að njóta stemningarinnar í þessum einstaka
fjallabæ.


Dagur 8:
Rúta frá hóteli til Genfar þaðan sem flogið er heim til Íslands. 

Verð: 337.000 kr

Staðfestingagjald: greiðist við skráningu 60.000 kr

 

Innifalið:

➢ undirbúningsfundur

➢ rútuferðir til og frá flugvellinum í Genf

➢ leiðsögn

➢ gisting 7 nætur í tveggja og þriggja manna herbergjum með sérbaði á hótelum og 1 nótt í fjallaskála með morgunverð

➢ 2 kvöldverðir

➢ 1 hádegisverður 

➢ Allt skult milli gönguleggja og kláfur á degi 2

teygjur  eftir göngu

Ekki innifalið:

➢ flug ( hægt er að kaupa flug í gegnum okkur á völdum dags. verð.71.000 kr )

➢ 5  kvöldverðir

➢ 6 hádegisverðir

➢ drykkir

➢ kláfur á degi 6

➢ kláfur upp í Aguille du Midi

➢ ferða- og forfallatrygging

Athugið:

Þátttakendur þurfa að bera farangur sinn á ca. 8 kg bakinu í 3 daga.

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page