top of page
465239636_10232895760086932_311834676416

Vatnaleiðin - gönguferð
3ja daga Göngu- og upplifunarferð 
14.-16. júní 2025

Vatnaleiðin er einstaklega falleg og fjölbreytt gönguleið sem liggur um gróskumikla dali, lyngbreiður og hálsa á vestanverðu landinu. Á leiðinni fylgjum við fornum götum og þræðum okkur á milli fimm vatna: Hreðavatns, Vikravatns, Langavatns, Hítarvatns og Hlíðarvatns. Útsýnið er víðfeðmt og landslagið síbreytilegt, þar sem mýkt gróðurvinja skiptist á við hrjúft hraun og tignarleg fjöll í fjarska.

Ferðin býður upp á hæfilega langar dagleiðir með mildum hækkunum, sem gerir hana aðgengilega fyrir flesta göngugarpa. Við göngum yfir lága hálsa og niður í grösuga dali þar sem kyrrðin og fegurðin umlykja ferðafólk. Gist er í  skálum, og þar sem ferðin er trússuð, þarf einungis að bera léttan dagspoka.

Vatnaleiðin er frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta fjölbreyttrar náttúru, kyrrðar og útiveru.

Verð: 99.000 kr á mann

Dagskrá:

 

Dagur 1: Laugardagur

Lagt af stað úr Reykjavík á einkabílum og hittst í Borgarnesi kl 9.00 þaðan sem við fáum skutl á upphafspunkt göngunnar við Hreðavatn. 

Við hefjum gönguna eftir slóða meðfram Hreðavatni og þræðum okkur svo inn að Vikrafellinu eftir fallegum skógarstíg. Ef skyggni er gott förum við á toppinn en þaðan er frábært útsýni yfir Borgarfjörð. Við tökum gott nestisstopp við Vikravatn áður en við höldum áfram eftir giljum og dölum uns við komum að Langavatni. Þar komum við okkur fyrir  í skála, tökum teygjur, slökun, happy hour og eldum saman kvöldmat. Mögulega dífa einhverjar sig í vatnið að loknum göngudegi.

Samtals gengnir u.þ.b. 13 -15 km hækkun 500. metrar 

 

Dagur 2: Sunnudagur.

Eftir morgunverð og nestisgerð höldum við af stað eftir endilöngu Langavatni, vöðum Langánna, þræðum okkur yfir Langavatnsmúlann og niður í Þórarinsdal sem er fallegur dalur með Tröllakirkju og Smjörhnjúk á hægri hönd. Þarna breytist  landslagið talsvert og við göngum inn í hraunbreiðu frá síðasta gosi í Ljósufjöllum. Þarna blasir Hítardalurinn við með hrauni og móbergsfjöllum.

Við komum okkur fyrir í skála sem lúrir undir Hólminum og Hítaráin liðast framhjá skálanum. Tilvalið að taka snökkt bað í ánni eða fá sér stuttan göngutúr niður á vatninu og  sundsprett.  Einnig gætum við skottast í kvöldgöngu upp á Hólminn ef úthald leyfir.

Samtals gengnir 20 km hækkun 600 metrar 

Dagur 3: Mánudagur 

Við byrjum daginn á að vaða Hítaránna áður en við hækkun okkur upp í Klifsgil og inn í Klifsdalinn sem er fallegur lokaður dalur umlukinn tignarlegum tindum. Af brún dalsins er fallegt útsýni yfir Hlíðarvatnið og áleiðis niður á Skógarströndina.

Við vöðum Djúpadalsá áður en við komum heim að bænum Hallkellsstaðarhlíð þaðan sem við fáum skutl niður í Borgarnes.  

Það væri gaman að enda ferðina á sameiginlegum kvöldverði og heitu baði í Kraumu áður en haldið er heim á leið. 

Samtals gengnir 12 -13 km 450 m hækkun.

Verð: 99.000, - kr á mann 

Innifalið:

  • Akstur, trúss og leiðsögn í 3 daga

  • Skálagisting í 2 nætur

  • Matur frá kvöldverði á degi 1 til hádegisverðar á degi 3

  • VSK

 

Ekki innifalið:

  • Nesti á degi 1 og kvöldverður á degi 3

  • Drykkir 

Bókaðu núna

  • Facebook
  • Instagram

©2023  Millu og Krillu Ferðir

bottom of page