
Vetrarvellíðan á ströndum í samstarfi við Yoga og heilsa
Dagsetning :
-
4. - 8. nóvember 2026
Skammdegið á Íslandi er tími kyrrðar, endurnýjunar og einstakrar fegurðar. Á meðan náttúran hægir á sér gefst okkur tækifæri til að gera hið sama – anda dýpra, næra líkamann og endurhlaða hugann.
Í þessari vellíðunarferð á Ströndum dveljum við á Hótel Laugarhóli, notalegu fjölskyldureknu hóteli í Bjarnarfirði þar sem fjöll, ár og ósnortin náttúra skapa fullkomið umhverfi til slökunar og endurnæringar.
Einn helsti gimsteinn staðarins er Gvendarlaug, söguleg náttúrulaug ásamt náttúrulega upphitaðri sundlaug og heitum potti. Vatnið er einstaklega tært og súrefnisríkt og hefur um aldir verið talið búa yfir hreinsandi og græðandi eiginleikum. Heita vatnið verður órjúfanlegur hluti af dvölinni þar sem við fléttum saman hreyfingu, slökun og böðum sem hjálpa líkamanum að losa um spennu og endurheimta jafnvægi.
Á hverjum morgni hefjum við daginn með jógaiðkun sem hentar öllum sem hafa grunnþekkingu á jóga. Við leggjum áherslu á meðvitaða hreyfingu, öndun, núvitund og djúpa slökun. Dagskráin verður síðan sveigjanleg og mótast af veðri, birtu og stemningu hópsins. Á meðan á dvölinni stendur verður einnig lögð áhersla á hollan og næringarríkan mat úr fersku íslensku hráefni sem styður við vellíðan og endurnæringu.
Hótelið verður eingöngu frátekið fyrir hópinn og býður upp á notalega aðstöðu fyrir jóga, samveru og góðar stundir við kertaljós.
Jógakennari verður Ásta Þórarinsdóttir, eigandi Yoga & Heilsu, sem hefur áratuga reynslu af jógakennslu og því að leiða fólk inn í meiri styrk, jafnvægi og vellíðan.
Leiðsögumaður verður Emelía Blöndal (Milla) eigandi Millu og Krillu ferða.
Sjá heimasíðu hótelsins hér https://www.laugarholl.is/
Verð: 149,000- kr. á mann í tveggja og þriggja manna herbergjum.
Innifalið:
-
4 nætur í tvíbýli með baði á hótel Laugarhóli
-
Fullt fæði frá morgunnverði á degi 2 til morgunnverðar á degi 5
-
Jógakennari og leiðsögumaður allan tímann
-
Aðgangur að sundlaug og heitum pottum
Ekki innifalið:
-
Kvöldverður á degi 1
-
Akstur til og frá Bjarnarfirði
-
Drykkir (velkomið að taka með drykki)
Dagskrá:
Dagur 1: Velkomin á Strandir
Fólk kemur sér sjálft á staðinn og kemur sér fyrir á herbergjum. Frjáls tími til þess að fara í sund, kynnast, spjalla og slaka á.
Dagur 2-4: Náttúra, hreyfing og endurnæring
Dagskráin verður sveigjanleg og mótast af veðri, birtu og því sem hópurinn hefur mestan áhuga á hverju sinni. Allir dagar munu þó hefjast með jógatíma.
Við munum meðal annars:
-
Fara í gönguferðir um náttúru Strandanna.
-
Stunda jóga, öndunaræfingar, djúpslökun og sundleikfimi.
-
Njóta baða í náttúrulega heita og steinefnaríka vatninu á Laugarhóli.
-
Kynnast sögu og menningu svæðisins með sögustundum, heimsóknum á áhugaverða staði, svo sem Galdrasafnið eða Galdrakot.
-
Gefa okkur tíma til samtala, ígrundunar og samveru.
-
Fylgjast með norðurljósum þegar aðstæður leyfa.
Skammdegið býður upp á allt aðra upplifun en sumarið. Hlýjar laugar, kertaljós, góð máltíð og dimmur stjörnuhiminn skapa einstakt andrúmsloft sem margir upplifa sem djúpt endurnærandi.
Dagur 5: Til baka til Reykjavíkur
Eftir jógatíma og morgunverð er tími til að pakka niður í rólegheitum áður en haldið er heim á leið.
Um Ástu Þórarinsdóttur:
Ásta Þórarinsdóttir rekur jógastúdíóið Yoga & Heilsa og hefur kennt jóga síðan árið 2018. Hún kennir bæði kröftugt jóga og rólegt og hefur farið árlega með hópa til útlanda í jógaferðir síðan árið 2022. Uppáhaldsjógastöðurnar hennar eru jafnvægisstöður því þær eru krefjandi fyrir bæði líkama og huga og reyna á marga þætti í einu og geta gefið mismunandi niðurstöðu daglega. Hún veit líka að það að slaka á er gríðarlega mikilvægt og enda allir hennar jógatímar á slökun. Ásta stundaði fjallgöngur um árabil, sumar og vetur, spilar golf og er að fikra sig áfram á gönguskíðum og að hjóla. Hún er mikill náttúruunnandi og tekur alvarlega að staldra við og njóta, hlusta á fugla, skoða jurtir og steina og njóta augnabliksins.












